2.9.2007 | 22:00
Sumarlokun er afstaðið
Jæja manni er byrjað að berast morðhótanir og þaðanna verra ef maður fer ekki að blogga fljótlega, hef verið undir vitnavernd í allt sumar en lögreglann treystir sig ekki lengur að fela mig svo ég neyðist víst að fara blogga aftur.
Hættur þessu masi núna, næsti pistill verður "The Sumar 2007" bíðið spennt í þessari viku því pistillinn verður frumsýndur fljótlega.
Kveðja Gvendur "Lati"
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.4.2007 | 01:52
Páskafríið langa sem var stutt......
Þá er þetta páskafríi senn á enda eins og kannski flestir hafa uppgötvað. Það hefur margt gerst í fríinu þótt kannski ég muni nú ekki eftir öllu en svona fer aldurinn með mann, ætla allavega rifja upp nokkur atriði úr fríinu. Ég kláraði loksins meiraprófið er því kominn með vörubíl og eftirvagninn en rútan verður að bíða til betri tíma eða allavega fram yfir 21 árs aldurinn. Sé reyndar mikið eftir því að hafa ekki klárað þetta fyrr því að mér bauðst að keyra vörubíl með vagni sama daginn og ég tók prófið þannig að það var ekki alveg að ganga upp, því miður. Svo var maður í bústörfunum að vinna upp það sem hefur setið á hakanum í vetur.
Svo voru partý nánast öll kvöld og komu menn ansi misjafnir útúr þeim, best að fara nú ekkert nánar út í þau mál, en það er skemmtilegt að segja frá því að eitt kvöldið urðu menn orðnir leiðir á drykkjuspilum og þeim datt það snjallræði í hug að fara á trompólín og ætli klukkan hafi ekki verið milli þrjú og fjögur að nóttu til og þar af leiðandi ekki margir vakandi á þeim tíma dags, en þeir létu það ekkert á sig fá heldur djöfluðust á trompólíninu í einhvern hálftíma í skítakulda, en það urðu eftirköst af þessu trompólínuævintýri hjá þeim strákum, um morguninn hringdi í mig maður og öskraði hvað helvítinu við hefðum verið að gera á trompólínu um hánótt og ég afsakaði mér frá þessu máli og kvaðst hafa verið inni á meðan þessu stóð og tók hann því gott og gilt en segist fara út á nærbrókunum einu fata og vera í vígahug ef þetta gerist aftur, því mæli ég með því að menn fari ekki á trompólín eftir miðnætti nema þeir vilji enda í einhverri náttúrulífsmynd með rauðri górillu í fúlu skapi en það viljum við ekki
Svo toppurinn á páskahelginni var náttúrulega Stuðbandaballið þar sem þeir trylltu liðið þangað til að þeir stóðu ekki lappirnar....en því miður var ég nú ekki hluti af þessu liði heldur var ég í minnahluta hópi þarna eða sem sagt edrú og var dyravörður. Þetta fór alltsaman siðsamlega fram og voru engin teljandi leiðindi nema hvað að klósetthurðin ákvað að bregða sér útí fríska loftið og vil benda á þeir sem urðu þess varir að þegar klósett hurðin fór á flakk eru beðnir um að láta lögregluna í Stykkishólmi vita í síma 112.
Næst á dagskrá er Akureyri city eða borg norðursins, verður þar skellt sér á söngvakeppi framhaldsskóla og er FSN líklegt til að vinna þótt maður sé ekki búinn að heyra það sem verður flutt fyrir okkar hönd en hey maður verður að vera bjartsýnn
Þangað til næst........bless á meðan
Bloggar | Breytt 11.4.2007 kl. 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.3.2007 | 22:22
Helgar rölfið
Maður verður að fara aðeins að taka sig á í blogginu, náttúrulega engin frammistaða í þessu.
En hvað um það, helgin byrjaði nokkuð vel hjá manni. Fyrir kannski utan það þegar ég sótti ákveðnar manneskjur Föstudagskvöldið byrjaði á því að maður skellti sér á Rómartónleika (til styrktar rómarhópsins) og var mikið af hæfileikaríku fólki sem spilaði og söng þarna. Var það mat manna og kvenna að þetta hafi allt heppnast vel hjá okkur og vil ég þakka þeim sem hlýddu á tónleikanna og eins sem þeim fluttu tónverk og annað gaman.
Að loknum tónleikum var náttúrulega skellt sér í partý og þar var mikið sungið og hlegið svo að það heyrðist víða um bæinn, var maður kominn í rúmið góða um hálf fjögur leytið um nóttina, en nóttin var rétt að byrja því að það hringdi í mig maður og bað um að láta sækja sig í Grundarfjörð og sem þessi ljúflingsdrengur fór og ætlaði að sækja hann en svo bara svaraði maðurinn ekki aftur þannig ég fór í fýluferð og var ég kominn um sexleytið heim aftur.
Um áttaleytið á laugardagsmorgni þá var farið á fætur og sinnt bústörfum því að gömlu voru ekki heima. Að því loknu var síðan skellt sér í Grafarnesið að sækja stelpu hnjátur til að leggja af stað í "Road trip" í "Borg óttans". Voru ekki allar á því að leggja af stað í "blíðviðrinu" en þær sannfærðust að þetta væri nú ekki alvont veður og var haldið af stað til Reykjavíkur með tilheyrandi pissustoppi í Borgarnesi. Fyrsta sem var gert þegar bæinn var komið var að fara í The Kolaport þar sem var keypt ýmisleg föt og glingur í 80´s style, ég keypti mér nú ekki neitt ef satt skal segja en ég hafði gaman að því að skoða mannlífið í kolaportinu enda mjög fjölbreytt mannlíf þar, allt frá fínum frúm niðrí dópista og aumingja.
Og svo náttúrulega var farið að næra sig á "subway" þar sem allir voru að deyja úr þreytu þangað til að það kom þessi skemmtilega setning frá henni Joao "það væri svo gott að skíta.......mórall kæmi" og sprungu allir úr hlátri nema Joao. Að þessu loknu var haldið í bílalúgu þar sem Kamí fór á kostum, segi ekki meira.
Síðan var í bíó, að sjálfsögðu, á myndina "wild hogs" sem var nokkuð góð, veit reyndar ekki hvort ég hló meira myndinni eða af ferðafélögunum
Eftir myndina var farið á rúntinn þar sem við vorum að vinka fólki og tala við það á ljósunum og brást fólk mjög misjafnvel við þessu undarlegu sveitafólki. Sem er kannski ekki skrítið því að erum hver öðru furðulegri. Tókum Laugarvegsrúnt og vorum með afskaplega skemmtilega músik á og ég er ekki frá því að fólk var byrjað að þekkja okkur.......
Og svo fljótlega eftir þetta þá ákváðum við að leggja af stað heim því allir voru orðnir lúnir og sybbin.......
Svo komum loks heim, skutluðum Grundaragellum fyrst og rakleiðis heim og tókum nokkra rúnta og var nokkuð mikið líf í bænum enda var "The Stuðband" að spila á fiskunum. Svo var bara farið heim að lúlla......
Ég held að þetta sé allt......
Þangað til næst......ble
P.s. Þakka samferða félögunum fyrir skemmtilega helgi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.3.2007 | 00:39
Múlavirkjun af eða á?
Þar sem ég bý nú nálægt Múlavirkjun þá hef ég fylgst með henni og skoðað þetta í krók og kima. Vandamálið er það í fyrsta lagi
*Ég sé ekki allt þetta rask sem allir eru að tala um útaf að yfirborðið á vötnunum sé að hækka
*Síðan skil ég ekki þegar er verið að tala um að straumöndin sé að deyja út á íslandi úf þessari virkjun þetta er kannski ýkt hjá mér að segja þetta en Náttúrustofa vesturlands talar um þetta eins þetta sé einhver tortíming á straumöndina en ég spyr haldið þið virkilega að straumöndin hugsi "djöfull komin virkjun best að leggjast á bakið og drepast"
* Og loks þvílík endæmis vitleysa bullið um að húsið sé of hátt og áberandi er tóm fjarstæða ljómandi fallegt hús þarna á ferðinni.
Fólk ætti að hugsa þegar er verið að bulla svona vitleysu uppí kok á því.
Einnig væri gaman að heyra upprifjum í fréttum að þegar Vatnaleið (það sem Múlavirkjum stendur hjá) var lögð þá ákváðu einhver sérvitringar að sökkva mýrum hjá Kolviðarnesi til að endurheimta mýrlendi, já gott fólk þar er nú stöðuvat, hversu heimskulegt geta menn orðið?
Takk fyrir mig verið þið sæl
Sótt um nýtt virkjunarleyfi vegna Múlavirkjunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2007 | 14:28
Fyrsta færslan fædd!!!
Jæja þá er maður lentur í þessari gryfju bloggara, bjóst ekki við þessu en svona er þetta
Mun eða ætla allavega að vera duglegur að setja inn mynd og síðan kemur vonandi einstök blogg ef liggur vel á manni en nú er komið nóg að sinni, verið þið sæl
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Karl Magnússon
Tenglar
Blogg hjá hinu fólkinu.....
- Bryndís frænka
- Berglind frænka
- Gígantískar Snar ruglaðar þótt hálfa væri helmingi of mikið!
- Berg
- Joao
Skólatengt
Snjósleðar og fjórhjól
Bílatengt
- Ferðaklúbburinn 4x4
- Bílanaust
- Bílabúð Benna
- Askja
- live2cruize Spjall og sölusíða
- Ingvar Helgason
- Topgear
- Bernhard
- Toyota
- Hekla
- Brimborg
Trukkar og Vinnuvélar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar